Í hrossaræktinni á Horni er stuðst við nútíma búvísindi í bland við hyggjuvit og innsæi bóndans. Á búinu fæðast fjögur til átta folöld á ári. Aðeins eru notaðir úrvals stóðhestar sem hafa sannað sig sem einstaklingar og kynbótahestar. Í einstaka tilfellum er leitt undir mjög álitlega ungfola. Undaneldishryssurnar eru úrvals hryssur sem hafa verið valdar í ljósi reynslu eftir áratuga ræktunarstarf.